Eru auglýsingarnar virkilega ótakmarkaðar?
Já. Mánaðargjaldið er það sama hvort sem fasteignasali gerir þrjár auglýsingar í mánuðinum eða þrjátíu.
Af hverju er uppsetningargjald?
Áður en fyrsta auglýsingin verður til setjum við upp sniðmát stofunnar út frá merki hennar og litum og tryggjum að hver stærð birtist rétt. Sú vinna er unnin einu sinni fyrir stofuna, ekki fyrir hvern fasteignasala.
Hvað ef ég bæti við fasteignasala síðar?
Hann bætist við áskriftina á sama mánaðarverði. Uppsetningargjaldið greiðist ekki aftur.
Hvernig virkar árleg greiðsla?
Ársáskrift er greidd fyrirfram fyrir tólf mánuði. Fyrir hvern fasteignasala eru það 99.000 kr. á ári fyrir fyrsta fasteignasala og 99.000 kr. fyrir hvern viðbótarnotanda.
Þarf einhver á stofunni að kunna á hönnunarforrit?
Nei. Sniðmátin eru sett upp fyrir stofuna, svo enginn þarf að dútla við hönnun eða stærðir.
Er virðisaukaskattur innifalinn?
Nei. Öll verð á síðunni eru án virðisaukaskatts.